„Það er bæði ástæðulaust og óþarft að fjölyrða um þessa bók og marklaust að fjalla um einstakar þýðingar hafi maður hvorki aðgang að ljóðunum á frumtungunni né kunni málið að gagni,“ skrifar Sigurður Hróarsson í fimm stjörnu dómi sínum ljóðasafnið Öll dagsins glóð í Fréttablaðinu um helgina. „Inngangur þýðandans [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][Guðbergs Bergssonar] og kynningar hans á einstökum skáldum eru fyrirtaks bókmenntafræði – fer þar saman afburðaþekking, dæmalaus stílþrif og málfimi, hugmyndaauðgi, áræði og vakning, og djörf efnistök sem eiga sér vart hliðstæðu (hér og nú) hvað varðar frumleika í túlkun og innsýn í eiginleika ljóðsins, eðlisþætti þess og formgerð.“ Enda skrifar Sigurður fullum fetum að hér sé komin frábær bók og sannkallaður kjörgripur sem ljóðaunnendur ættu að lesa í þaula.
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]