Benedikt Gröndal

Fimm stjörnu Dægradvöl!

Í vor endurútgaf Forlagið eina ástsælustu ævisögu íslenskrar bókaflóru, Dægradvöl eftir Benedikt Gröndal, og nú um helgina hlaut bókin heilar fimm stjörnur hjá Jóni Yngva Jóhannssyni, gagnrýnanda Fréttablaðsins.

Dómi sínum segir Jón Yngi meðal annars:

„Benedikt Gröndal er af mörgum ástæðum einhver mest heillandi persónuleiki íslenskrar bókmenntasögu og í Dægradvöl, sjálfsævisögu hans sem nú er nýútkomin í kiljuútgáfu, fá lesendur tækifæri til að kynnast honum sjálfum, samferðamönnum hans og þeim tímum sem hann lifði … Í bókinn kynnumst við einstökum sögumanni sem hlífir engum og síst sjálfum sér, hann birtir okkur horfna tíma í vægðarlausu ljósi og síðast en ekki síst er hann frábær rithöfundur, hann kemur á óvart á hverri síðu og það er sama hvar gripið er niður, alltaf er stíllinn ferskur, lifandi og óvæntur.“

Dómnum líkur Jón Yngi svo á þessum orðum: „Ógleymanleg ævisaga eins sérstæðasta og ritfimasta höfundar íslenskrar bókmenntasögu.“

Dægradvöl er skrifuð á seinustu áratugum 19. aldar þegar höfundurinn var tekinn að reskjast og kom ekki út fyrr en löngu eftir hans dag. Í bókinni birtist okkur þúsundþjalasmiður og skáld, viðkvæmur maður en hreinskiptinn, opinskár um líðan sína og hagi, oft fyndinn og fjörugur en stundum innilega fúll – ævinlega sjálfum sér líkur. Verkið hefur einnig að geyma margar frábærar mannlýsingar, bæði af ýmsum frægustu persónum aldarinnar og óþekktu alþýðufólki, og dregur upp einstaka mynd af íslensku samfélagi 19. aldar.

Dægradvöl hafnaði í öðru sæti í flokki ævisagna á Kanónulista Kiljunnar sem kynntur var í síðasta þætti Kiljunnar nú í vor.

Það er því óhætt að mæla með Dægradvöl fyrir alla bókelskandi Íslendinga!

INNskráning

Nýskráning