Landnám, ævisaga Gunnars Gunnarssonar eftir Jón Yngva Jóhannsson, hefur fengið gríðarlega góða dóma og nú síðast fimm stjörnu dóm í Fréttablaðinu. Í dómnum er talað vel um vinnubrögð Jóns Yngva og þá sérstaklega hve vel hann nýtir sér ógrynni heimilda til að kafa í sálarlíf skáldsins ásamt skrifum annarra til að draga upp greinagóða mynd af Gunnari en er þó óhræddur við að andmæla þeim fræðimönnum sem áður hafa skrifað um hann.
Gagnrýnandi er hrifinn af afrakstri þessarar rannsóknarvinnu og segir að greiningin á Gunnari sé „bráðskörp og á köflum er engu líkara en Jón Yngvi sé að skrifa um náinn ættingja sinn eða góðan vin, þar sem hann tíundar bæði galla Gunnars og kosti. Tónninn í þessum skrifum er kumpánlegur og oft launfyndinn…“
Niðurstaðan í dómnum er skýr: „Stórmerkileg ævisaga, samin af heiðarleika og djúpri sannleiksþrá.“