Gagnrýnandi danska blaðsins Politiken, May Schalk, gefur ævisögu Halldórs Laxness eftir Halldór Guðmundsson fimm stjörnur (nú eða hjörtu – af sex mögulegum) og hrósar bókinni í hástert. Bókin var nýlega gefin út þar í landi á dönsku. Bókin hefur nú þegar komið út í Þýskalandi, Noregi, Sviþjóð og Bretlandi.
May segir ævisagnahöfundinn, Halldór Guðmundsson, vera af hinum klassíska skóla og vinna verkið af nákvæmni og samúð með Nóbelsverðlaunahafanum en hvergi hliðra sér hjá því að lýsa manni sem hafði um margt á röngu að standa. Hún segir Halldór Guðmundsson jafnframt leggja sig fram um að dæma ekki rithöfundinn. Gagnrýnandinn segir bókina varpa skýru ljósi á rithöfund sem var sífellt hvattur áfram af eigin metnaði og altekinn af hugsjónum sínum. Meðfram lestri ævisögunnar hefur ritrýnir Politiken endurlesið Sölku Völku til að komast í betra samband við höfundarrödd Laxness og hans óumdeilanlegu frásagnargáfu. Sem fyrr segir fær bókin fimm hjörtu enda bæði vönduð og vel skrifuð.