Þórarinn Eldjárn er iðinn maður með afbrigðum og lætur sig ekki muna um að senda frá sér fleiri en eina og fleiri en tvær bækur á ári ef svo ber undir. Á þessu hausti eru í það minnsta fimm (já, fimm) bækur í jólabókaflóðinu á hans snærum að meira eða minna leyti!
Sú eina sem hann „á einn“, ef svo má að orði komast, er nýja skáldsagan hans, Hér liggur skáld, sem út kom nú í nóvemberbyrjun. Þar segir frá hetjum og skúrkum fyrri alda, vígaferlum og kynngimögnuðum kveðskap, og leikurinn berst úr Svarfaðardal um Noreg og Danmörku til Þingvalla. Þetta er fyrsta skáldsaga Þórarins í átta ár – en í millitíðinni hefur hann auðvitað sent frá sér smásögur, ljóð, barnabækur …
Önnur bók Þórarins nú í haust er þýðing hans á meistarastykkinu Macbeth eftir William Shakespeare. Bókin kom út í kilju á dögunum en leikritið, í þessari nýju þýðingu, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu um jólin. Fyrir tveimur árum þýddi Þórarinn annað Shakespeare-leikrit, Lé konung, sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir.
Tvær bækur á Þórarinn svo með Eddu Heiðrúnu Backman, barnabækurnar Vaknaðu, Sölvi og Ása og Erla. Edda Heiðrún málar vatnslitamyndir og Þórarinn ljóðskreytir þessar fallegu bækur en allur ágóði af sölu þeirra rennur til Hollvina Grensáss.
Fimmtu bókina sem Þórarinn ber verulega ábyrgð á í ár skrifaði faðir hans, dr. Kristján Eldjárn, fyrir hálfri öld, sumarið 1962. Þetta er Vínlandsdagbók sem segir frá leiðangri sem Kristján, sem þá var þjóðminjavörður, fór til Nýfundnalands til að leita minja um dvöl norrænna manna þar. Þórarinn átti frumkvæði að útgáfu dagbókarinnar og skrifar inngangsorð en bókin er prýdd fjölda ljósmynda úr leiðangrinum, ásamt kortum og öðru myndefni, og Adolf Friðriksson fornleifafræðingur skrifar eftirmála um sögu Vínlandsleitar.