Fersk innsýn í nútímann

Friðrika Benónýsdóttir er hress í máli um spennusöguna [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][geim] eftir Anders de la Motte í Fréttablaðinu í dag. Hún bendir að vísu á að „texti bókarinnar fengi seint nokkur móðurmálsverðlaun, vaðandi í enskuslettum og tölvuleikjaslangri,” en fullyrðir að hann sé „einhver best heppnaða innsýn í talsmáta og hugsun tölvuleikjakynslóðarinnar sem sést hefur á prenti. Lesandinn trúir því hundrað prósent að nákvæmlega svona tali persónurnar og Jón Daníelsson hefur unnið feikigott verk með „íslenskuninni“, því þetta tungumál eiga ungmenni Vesturlanda sameiginlegt, þótt móðurmál þeirra séu ólík.

Í heild er [geim] virkilega vel byggð, spennandi og skemmtileg saga sem ætti að kæta hvern þann lesanda sem hefur minnsta áhuga á því hvernig heimurinn er að breytast.“ Og niðurstaða hennar er: „Hressileg, spennandi og skemmtileg saga sem gefur ferska innsýn í heim snjallsímakynslóðarinnar.“

[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning