Ferming

Fermingargjafir sem endast!

Hvernig væri að gefa fermingarbarninu fræðandi, fallega, eigulega, gefandi og hagnýta gjöf?

Fermingabækur eru í miklu úrvali hjá Forlaginu og auðveldlega hægt að finna bók sem hentar hverjum og einum. Hér er eingöngu talið upp brot af þeim bókum sem gætu komið til greina fyrir fermingarbarnið.

Orðabækur eru klassískar og ávallt nytsamlegar. Íslensk orðabók í kilju fer vel í tösku og Stóra orðabókin tekur sig vel út í bókaskápnum.

Leiðsögn í máli og myndum kallast ritröð í alfræðistíl. Þar má finna bækur sem fjalla um m.a. um söguna, vísindin og jörðina á litríkan og aðgengilegan hátt.

Askjan með bókunum Íslenskir málshættir og Íslensk orðtök er afar hagnýt gjöf, bókin Eldgos 1913-2011 gefur greinagóða sögu eldgosa á Íslandi og Stóra saumabókin kennir öll grundvallaratriðin í saumaskap. Biblían, sjálf bók bókanna, á einnig afar vel við sem fermingargjöf.

Ekki má gleyma fagurbókmenntunum. Hvort sem það eru verk Laxness eða önnur íslensk klassík, erlend klassík á borð við Reisubók Gúllivers eða samtímabókmenntir líkt og Úrvalsbók Einars Kárasonar þá er víst að gjöfin hefur að geyma sagnafjársjóð sem endist út ævina.


INNskráning

Nýskráning