Laugardaginn 1. júní, milli kl. 13 og 16, býður Forlagið upp á sína árlegu ferðaveislu í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39. Þá verður Ferðadagur fjölskyldunnar haldinn hátíðlegur með pompi og prakt.
Grillmeistari Forlagsins kyndir upp í kolunum og býður gestum og gangandi upp á ljómandi grillpylsur. Milli kl. 14 og 15 verður einnig boðið upp á smakk á hinum splunkunýjum bulsum en það er hinn eini sanni Prins Póló sem mun kynna þær til leiks og jafnvel taka eins og eitt lag eða tvö.
Heilmikið fjör verður fyrir börn: Heljarinnar teikniaðstaða verður á staðnum og verk barnanna verða svo birt með nafni listamanns á Facebook síðu Forlagsins. Candyfloss vélin stendur fyrir sínu og milli kl. 14 og 16 verður boðið upp á andlitsmálningu. Öll börn sem koma eru svo leyst út með sérstökum glaðningi.
Á meðan krakkarnir skemmta sér getur fullorðna fólkið skoðað frábært úrval ferðahandbóka í Bókabúð Forlagsins sem verða á sérstöku ferðatilboði. Hvort sem stefnan er tekin á fjallgöngur, lautartúra, hringferð um landið eða kúra í sumarbústað er fullvíst að þú finnur bók við hæfi.
Í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð er einnig stærsta kortadeild landsins með öllum mögulegum útgáfum af kortum í alls kyns stærðum og gerðum.
Kortasérfræðingurinn Hans H. Hansen verða á staðnum til skrafs og ráðagerða.
Þú ættir svo sannarlega ekki að týnast í sumarfríinu þínu. Allir sem mæta fá miða í happadrætti og eiga möguleika á að vinna veglegan ferðaglaðning.
Komdu þér í rétta gírinn fyrir ferðalög sumarsins á Ferðadegi fjölskyldunnar á laugardaginn í blíðu og grillstuði.