Sigrún Eldjárn rithöfundur og myndlistarmaður verður gestur í bókakaffi Gerðubergs í kvöld, miðvikudaginn 26. október og hefst kaffið kl. 20. Sigrún ætlar að hafa með í hafurtaski sínu mis-rykfallnar ferðadagbækur sem hún heldur jafnan á ferðum sínum, myndskreytir, safnar í þær úrklippum, nafnspjöldum og ýmsu smálegu auk þess sem hún skrifar um ferðina. Þessar persónulegu og skemmtilegu bækur mun hún sýna gestum og segja frá því sem fyrir augu ber á dagbókarsíðunum. Öðrum ferðalöngum er jafnframt velkomið að mæta með sínar eigin ferðadagbækur.
Í Bókakaffinu er spjallað um bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á meðan gestir kaffihússins njóta veitinga í notalegu andrúmslofti. Markmiðið er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt svo og að sýna fjölbreytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku. Sjá nánar á vef Gerðubergs.
Nýjasta bók Sigrúnar, Náttúrugripasafnið, er nýlega komin út. Hún er sjálfstætt framhald bókarinnar Forngripasafnið sem kom út á síðasta ári og hlaut ákaflega góðar viðtökur.