Litlir vísindamenn landsins, kætist! Von er á stórskemmtilegri bók eftir leikarann og vísindamanninn Ævar Benediktsson, betur þekktur úr sjón- og útvarpi sem Ævar vísindamaður, sem heitir Umhverfis Ísland í 30 tilraunum.
Ævar vísindamaður sló í gegn með spennandi vísindaþáttum fyrir börn og unglinga í vetur. Nú setur hann Ísland undir stækkunarglerið, ferðast hringinn í kringum landið og rannsakar allt sem fyrir augu ber. Í bókinni eru tilraunir sem þú getur gert heima hjá þér, á ferðinni og meira að segja tilraunir sem gera sig sjálfar og eru tilbúnar þegar þú kemur aftur heim!
Umhverfis Ísland í 30 tilraunum er skrítin, skemmtileg, fyndin og forvitnileg bók – ómissandi fyrir ferðalanga, hvort sem þeir ferðast með bíl, bát, hjóli eða bara í huganum.