Danir halda ekki vatni fyrir Jussi Adler-Olsen! Spennusögur hans raða sér þétt á þarlenda metsölulista en þar á hann allt upp í sex krimma í einu á topp tíu. Á morgun, fimmtudag, kemur út fyrsta bók hans á íslensku – sú heitir Konan í búrinu og er hin fyrsta í seríu sem kennd er við Deild Q. Jussi hefur aukinheldur sópað að sér alls konar viðurkenningum og upphefð, þar á meðal viðurkenningu fyrir bestu glæpasögu Danmerkur árið 2010.