Það er ekkert lát á útgáfu hér í herbúðum Forlagsins en í dag dreifum við þremur spánýjum og spennandi kiljum. Hér er eitthvað við allra hæfi!
Í Uppreisn eftir Jakob Ejersbo fléttast saman margar sögur sem eiga sér þó sameiginlegan, sáran undirtón. Sofie er hálfdönsk og hálfgrænlensk en hún hafnar eftir ævintýralegum krókaleiðum í Afríku. Við hittum fyrir indverskættaðar stúlkur í járngreipum hefða, kynnumst skelfilegum aðstæðum í námum þar sem mannslífið er einskis metið og rótlausum ungmennum í heimi spillingar og misnotkunar þar sem allt snýst um að lifa af. Frásögnin er nöpur og miskunnarlaus og sker inn að beini.
Uppreisn er önnur bókin í þríleik Jakobs Ejersbo um mannlíf í Afríku og eftirköst nýlendutímans og persónur úr fyrstu bókinni, Útlaga, koma við sögu. Sagnabálkurinn hefur vakið mikla athygli og verið þýddur á fjölmörg tungumál enda þykir hann opna einstæða sýn á álfuna. Páll Baldvin Baldvinsson þýddi.
SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ LESA BROT ÚT UPPREISN
Í glæpasögunni Piparkökuhúsinu eftir nýjan höfund, Carin Gerhardsen, snýr gömul kona sem býr ein heim í hús sitt eftir langa sjúkrahúsvist. Á eldhúsgólfinu liggur lík af manni sem hún þekkir ekki en reynist vera vammlaus fjölskyldufaðir úr hverfinu. Hver hefur orðið honum að bana og hvers vegna? Lögregluforinginn Conny Sjöberg og undirmenn hans á Hammarbystöðinni standa á gati – og svo fjölgar morðunum og tengsl koma í ljós. En hver ber þyngsta sektarbyrði – sá sem fremur verknað, sá sem hvetur til hans, sá sem rís upp til hefnda eða sá sem horfir aðgerðalaus á?
Carin Gerhardsen þekkir einelti af eigin raun. Hún er stærðfræðingur og starfaði við ráðgjöf á sviði veflausna þar til hún sló í gegn með Piparkökuhúsinu. Hún hefur síðan sent frá sér fleiri vinsælar bækur um lögreglusveitina á Hammarbystöðinni. Nanna B. Þórsdóttir þýddi.
SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA BROT ÚT PIPARKÖKUHÚSINU
Mamma segir frá ungri stúlku sem heldur heim á prestssetrið til pabba síns þegar kærastan segir henni upp. Hún reynir hvað hún getur að átta sig á eðli ástarinnar og hlusta á fólkið sitt, vinkonuna og spunameistarann Mulle, lækninn þolinmóða með fráleitu hugmyndirnar, móðurina sem talar í slagorðum og hugsar ekki um annað en sextugsafmælið sem nálgast og föðurinn sem vitnar í Pink Floyd og trúir því að allt leysist af sjálfu sér.
Mamma segir er fyndin og sjarmerandi saga um ást, ástarsorg og meiri ást sem var stjörnum prýdd í fjölmiðlum í Danmörku þegar hún kom út árið 2012 og prentuð hvað eftir annað. Steinunn Stefánsdóttir þýddi.
SMELLTU HÉR TIL AÐ LESA BROT ÚT MAMMA SEGIR
Farðu með góða kilju út í sumarið!