Falsanir, bókmenntir og raunveruleiki

Húsfyllir var á einstökum viðburði í Listasafni Íslands um helgina þegar landsmönnum gafst kostur á að kynnast ólíkum hliðum málverkafalsana hér á landi. Tilefnið var ný skáldsaga Rögnu Sigurðardóttur, Hið fullkomna landslag, sem m.a. fjallar um hvaða atburðarrás fer af stað þegar falsað verk ratar inn á virta íslenska listastofnun. Saga Rögnu er skáldsaga um glæp sem kallast á vissan hátt á við stóra málverkafölsunarmálið sem skók íslenskan listheim fyrir nokkrum misserum síðan og sér ekki enn fyrir endann á.

Ólafur Ingi Jónsson, forvörður Listasafns Íslands, fræddi gesti um sitthvað fróðlegt er tengist fölsunum á Íslandi. Nú stendur yfir sýning á verkum Svavars Guðnasonar í safninu og sýndi Ólafur fróðleiksfúsum gestum hvernig verk hans hafa verið fölsuð, og það misvel, í gegnum tíðina. Sköpuðust líflegar umræður í framhaldinu, bæði um eftirköst fölsunarmálsins, stöðu íslenskrar myndlistar og efnistök bókar Rögnu.

Ekki voru allir sáttir við þennan viðburð á safninu um helgina og mótmælti m.a. einn sakborninganna í stóra málverkafölsunarmálinu fyrir utan safnið á meðan á dagskránni stóð.

INNskráning

Nýskráning