Áhugi Íslendinga á hvölum hefur stóraukist á undanförnum árum en á morgun, föstudag, kemur út ný handbók um hvalategundir við Ísland. Bókin Hvalir nýtist í senn við að skoða hvali í náttúrulegu umhverfi sínu og sem almennt uppflettirit, hún er fyrsta bók sinnar tegundar sem gefin er út á íslensku. Höfundar bókarinnar eru myndlistarmaðurinn Jón Baldur Hlíðberg og Sigurður Ægisson textahöfundur en þeir hafa áður samið bókina Íslenskir hvalir fyrr og nú sem og geysilega vinsæla bók um íslenskar kynjaskepnur. Handbókin Hvalir kemur í bókaverslanir á morgun – á íslensku og ensku.