Fiskar

Fagur fiskur og furðufiskur

Bókin Íslenskir fiskar í handhægri útgáfu!

Bókin Íslenskir fiskar eftir Gunnar Jónsson og Jónbjörn Pálsson með vatnslitamyndum Jóns Baldurs Hlíðberg kom fyrst út árið 2006 og var strax tekið ákaflega vel. Hún hefur verið ófáanleg um árabil en birtist nú aukin og endurskoðuð í þægilegu handbókarformi og með plasthlífðarkápu.

Þetta er einstæð fróðleikskista þar sem gerð er grein fyrir öllum þeim ríflega 350 fisktegundum sem fundist hafa í hafinu umhverfis Ísland og í vötnum landsins – vel á annan tug fiska hafa bæst við frá því bókin kom síðast út.

Bókin er tvískipt. Í fyrri hlutanum er fjallað um búsvæði, þróun og líffræði fiskanna en sá síðari geymir ítarlega umfjöllun um hverja tegund. Nákvæmar vatnslitamyndir Jóns Baldurs Hlíðberg af hverri þeirra sýna fiskana ljóslifandi, kort sýna útbreiðsluna og ýmis sérkenni eru dregin fram í skýringarmyndum. Bókin opnar ungum sem öldnum einstæða innsýn í heim fiskanna og nýtist m.a. námsmönnum og sjómönnum og öllum þeim sem unna umhverfinu og náttúru landsins.

INNskráning

Nýskráning