Ljóðabók Gerðar Kristnýjar, Blóðhófnir, sem út kom í liðinni viku hefur vakið hrifingu landshornanna á milli. Gagnrýnendur keppast við að lofa hana í hástert og lesendur hrífast með. Í Morgunblaðinu um helgina gefur Ingveldur Geirsdóttir bókinni fimm stjörnur og sama gerir stalla hennar Fréttablaðinu, Friðrika Benónýsdóttir, sem kallar hana lestrarnaut. Við hvetjum ljóðaunnendur til þess að glugga í þessa merku bók og tryggja sér eintak, fyrstu hundrað eintökin eru tölusett og árituð af höfundi.