Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl á að margra mati uppbyggilegustu hruns-bók ársins. Skáldsaga hans Gæska er þó miklu meira en bók um hrun og kreppu hún er heljarinnar upplyfting fyrir andann og uppfull af fjöri og ólíkindalátum eins og gagnrýnandi Pressunnar, Jón Yngvi Jóhannsson bendir á í stjörnumprýddum dómi sínum á Pressunni. Jón Yngvi gefur bókinni toppeinkunn og skrifar meðal annars:
„Þeir sem þekkja fyrri skrif Eiríks, bæði ljóð, skáldsögur og greinar vita að hann er fádæma stílisti og hefur fjölmargar stíltegundir á valdi sínu. Stíllinn á Gæsku er bæði fjölbreyttari og þróttmeiri en á fyrri skáldsögum Eiríks, hann leyfir sér meira, bæði flóknari stíl og meiri hasar og læti í lýsingum og atburðum.“