Þeir Dr. Helgi Þór Ingason og Dr. Haukur Ingi Jónasson eru forstöðumenn í meistaranámi í verkefnastjórnun á Íslandi (MPM) og hafa unnið farsælt starf saman í tíu ár. Nú hafa þeir loksins sett hugmyndir sínar niður á blað og almenningur getur nálgast þær í bókunum Leiðtogafærni og Stefnumótunarfærni.
Í bókinni Leiðtogafærni er fjallað um leiðtogafærni í ljósi sálarfræði og hugvísinda. Hvað einkennir góðan leiðtoga og hvernig getur þú orðið betri leiðtogi? Með bókinni Stefnumótunarfærni er ætlunin að gera lesendur hennar færari um að taka virkan þátt í stefnumiðaðri stjórnun og þannig styrkja þátttöku sína í atvinnulífinu.
Frábærar bækur fyrir alla þá sem vilja auka færni sína – í lífi, leik og starfi!