Uppskrift frá Lene Hansson

Færð þú vatn í munninn?

Heilsuráðgjafinn Lene Hansson mælir með því að við sukkum ekki of mikið um helgar. Hér er uppskrift að dásamlega meinhollum en bragðgóðum laxi. Tilvalinn fyrir helgina.? Í bókinni hennar Léttara og betra líf er fjöldi spennandi uppskrifta fyrir þá sem vilja huga betur að heilsunni.


Ofnbakaður lax með steiktu grænmeti
og lárperusalati
300 g laxaflak með roði
safi úr 1 límónu
salt og pipar
1 msk ólífuolía til að pensla fatið
1 knippi grænn spergill
2 stórar gulrætur
2 vorlaukar
1 msk sesamfræ, helst blanda af svörtum og ljósum
1 msk ólífuolía
1 tsk sojasósa


Kryddaðu laxinn með límónusafa, pipar og salti, leggðu hann í olíuborið eldfast fat og bakaðu hann við 180°C í 20 mínútur. Undirbúðu grænmetið á meðan : Skerðu sperglana í tvennt eftir endilöngu, skerðu gulræturnar í ræmur með flysjunarjárni og skerðu rótina af vorlaukunum. Snöggsteiktu grænmetið og sesamfræin í 1–2 mínútur við háan hita í blöndu af ólífuolíu og sojasósu.


Lárperusalat:
2 lárperur, þroskaðar
lófafylli af vætukarsa eða klettasalati
2 msk graskersfræ
1 msk sítrónusafi
½ tsk kryddsalt


Skerðu lárperur og vætukarsa fremur smátt og blandaðu graskersfræjum, sítrónusafa og kryddsalti saman við.

Uppskrift úr bókinni Léttara og betra líf.


INNskráning

Nýskráning