Við vekjum athygli allra kátra krakka á teiknisamkeppni Eymundsson sem haldin er í tilefni af Krakkadögum sem nú standa sem hæst. Í verslunum þeirra færð þú sérstakt þátttökublað þar sem þú getur teiknað flotta mynd, skilað henni aftur í búðina og hver veit nema þú vinnir flott verðlaun. Valdar myndir verða síðan birtar á Facebook-síðu Eymundsson ásamt myndum sigurvegaranna.
Þemað í keppninni eru „Furðuverur“ og keppnin er ætluð krökkum á aldrinum 4-12 ára. Skilafrestur er til 21. september. Upp með litina!