Ertu barnabókahöfundur?

Forlagið og Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka auglýsa eftir handritum að skáldsögu fyrir börn og unglinga í árlega samkeppni um Íslensku barnabókaverðlaunin.  Sagan skal vera að lágmarki 50 blaðsíður að lengd. Ekki er gert ráð fyrir því að verðlaunasagan verði myndskreytt.

Skilafrestur er til 1. febrúar 2012. Dómnefnd velur besta handritið og kemur það út hjá Forlaginu haustið 2012. Verðlaunin nema 500.000 krónum auk höfundarlauna.

Handritum skal skila í fjórriti til:

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka
Forlagið
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík

Handrit á að merkja með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.

Handrit eru ekki endursend en hægt er að nálgast þau hjá Forlaginu á tímabilinu 1. maí til 1. október 2012.

Frekari upplýsingar veitir Sigþrúður Gunnarsdóttir í síma 575 5604 / sigthrudur@forlagid.is

INNskráning

Nýskráning