Út er komin ný bók eftir rithöfundinn og samfélagsrýnirinn Einar Má Guðmundsson. Bókin Bankastræti núll ber undirtitilinn „sögur úr veruleikanum“ en þar skrifar Einar Már vítt og breitt um samband þjóðlífsins og menningarinnar. Íslenskur veruleiki er orðinn lygilegri en nokkur skáldskapur og því fléttar höfundur hér saman sögum og hugleiðingum sem setja samtíma okkar í þarft og óvænt samhengi.
Eða eins og segir í bókinni: „Kannski er skáldskapurinn andspyrnuhreyfing hins mannlega, kannski sendiherra vonarinnar. Í þúsundir ára hefur maðurinn fært stór og smá atvik úr lífinu í kringum sig í búning orða: þróað frásagnarlist sem þrátt fyrir háan aldur minnir meira á ungling í blóma lífsins en hruman jötun. Því má slá föstu að þorsti mannanna í sögur sé óslökkvandi og að sú tilhneiging „að segja frá stórmælum sem orðið hafa í veröldinni sé ekki tíska heldur mannkyninu ásköpuð“, einsog Halldór Laxness orðar það í Persónulegum minnisgreinum um skáldsögur og leikrit. Í frásagnarlistinni varðveitir mannkynið minningu sína, breytir atburðum í ævintýr og staðreyndum í sögu. Þannig er aldurinn, fortíðin og hið liðna ávallt með okkur, liggur undir koju í káetu heimsins og læðist hjá tollvörðum tímans.“