Af sérstökum ástæðum auglýsir Stjórn Íslensku barnabókaverðlaunanna að nýju eftir handritum að sögum fyrir börn og unglinga í samkeppni ársins.
Handritið skal vera að lágmarki 50 ritvinnslusíður að lengd og geta staðið án mynda. Skilafrestur er til og með 27. apríl 2012.
Handritum skal skilað í fjórriti, merkt með dulnefni en rétt nafn höfundar fylgi í lokuðu umslagi, til:
Forlagið / Íslensku barnabókaverðlaunin
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavík
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5755600 eða hjá forlagid@forlagid.is.