Málþing um skáldkonuna Guðrúnu frá Lundi verður haldið að Ketilási í Fljótum 14. ágúst nk. Þar munu fræðimenn og fleiri fróðir menn og konur fjalla um bækur Guðrúnar, þar á meðal hinn sívinsæla bókaflokk sem kenndur er við Dalalíf.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opnar málþingið en erindi halda Guðjón Ragnar Jónasson íslenskufræðingur, Marín Guðrún Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur og langömmubarn Guðrúnar, Ármann Jakobsson dósent, sem talar um Dalalíf, Ásta Kristín Benediktsdóttir íslenskufræðingur, sem ræðir um aðrar bækur Guðrúnar frá Lundi, og Bjarni Harðarson bóksali sem spyr: Hvernig getur menningin orðið stóriðja sveitanna?
Nánari upplýsingar má nálgast hér.