Eldgos

Enn hiti í Eyjum

Í dag rifja margir upp hvar þeir voru þegar þeir heyrðu af eldgosinu í Heimaey fyrir réttum 40 árum. Ein af spurningunum sem svarað er í bókinni Af hverju gjósa fjöll? er þessi: Hve lengi er nýtt hraun að verða að hörðum steini? Svarið er á þessa leið:

„Hraunið verður að hörðum steini að utan löngu áður en það er fullstorkið að innan. Hörð skorpa myndast utan á kvikuna eftir fáeinar sekúndur og fljótlega er hægt að ganga á hrauninu á góðum skóm, enda er hraunið einangrandi og leiðir varmann illa að fætinum. Hins vegar getur liðið langur tími þar til bergkvikan er storknuð alveg í gegn.

Þetta sást allt vel í Vestmannaeyjagosinu 1973. Menn gátu gengið á Eldfellshrauninu nokkrum dögum eftir að það rann en varmaorkan í hrauninu dugði til að hita hús í Vestmannaeyjum í 10 ár. Þessi hitaveita var sú fyrsta í heiminum sem nýtti varma úr nýrunnu hrauni. Þó að langt sé um liðið er enn talsverður hiti í hrauninu, uppundir 70 stig í gjótum og meira ef dýpra er grafið.“

Fleiri spurningar og svör í þessari stórgóðu bók tengjast gosinu í Vestmannaeyjum – og öðrum spennandi eldgosum um allan heim. Af hverju gjósa fjöll? hentar fróðleiksfúsu fólki á öllum aldri og kom út í samstarfi Forlagsins og Vísindavefjarins. Hvernig væri að nýta næstu daga til að fræðast dálítið um eldgos?

INNskráning

Nýskráning