Nýjar rafbækur koma inn á sölusíðu Forlagsins vikulega. Nýjasta nýtt er sérlega ánægjulegt fyrir börn. Hin vinsæla barnabók, Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf eftir Gerði Kristnýju er nú fáanleg á rafrænu formi ásamt unglingabókinni Þokan eftir Þorgrím Þráinsson.
Fleiri nýjar rafbækur eru t.d. dramasmellurinn Mundu mig, ég man þig og krimmarnir Fallið er hátt og Líf og limir.
Það ættu því allir í fjölskyldunni að finna eitthvað við sitt hæfi til að taka með í ferðalagið í sumar. Þá er bara að hlaða niður í tölvuna og fara með bókasafnið með sér í fríið.