Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar Á mannamáli, hlaut í dag félagshyggjuverðlaunin – viðurkenningu Ungra jafnaðarmanna sem veitt eru þeim einstaklingum eða félagasamtökum sem stuðlað hafa að betra samfélagi. Bók Þórdísar, sem varpar á einstakan hátt ljósi á stöðu ofbeldismála hérlendis, hefur verið afar vel tekið og hlotið hreint frábærar viðtökur hjá lesendum. Bókin var á dögunum tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita og hlaut Þórdís einnig jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir skömmu.
Í dómnefnd félagshyggjuverðlaunanna sátu Anna Pála Sverrisdóttir, Felix Bergsson og Guðrún Ögmundsdóttir. Verðlaunin hlaut einnig verkefnið Skólastoð þar sem sjálfboðaliðar söfnuðu skólavarningi og námsbókum fyrir nemendur víða um land.
Í rökstuðningi dómnefndar sagði m.a.: „Bók Þórdísar ber svo sannarlega nafn með rentu, hún er á mannamáli og nær einstaklega vel til lesandans. Kynferðisofbeldi er málaflokkur sem kemur öllum við og Ungir jafnaðarmenn vilja heiðra Þórdísi fyrir að bæta fleiri baráttumönnum gegn ofbeldi í hópinn.“