Bokakonfekt 3

Ennþá meira bókakonfekt

Af því að fólk hefur fráleitt fengið nægju sína af nærandi bókakonfekti er blásið til þriðja upplestrarkvölds á Café Rosenberg í kvöld, mánudaginn 14. nóv. og hefst dagskráin kl. 20.30. Að þessu sinni lesa eftirtaldir höfundar: Hugleikur Dagsson og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir kynna nýjar útgáfur á bráðfyndnum smábókum sínum, Popular Hits II og Generalization about nations, Anton Helgi Jónsson les úr ljóðabókinni Tannbursti skíðafélagsins, Jónína Leósdóttir les úr unglingasögunni Upp á líf og dauða, Kristín Helga Gunnarsdóttir úr Ríólítreglunni og Hjalti Rögnvaldsson les upp fyrir hönd Sigurðar Pálssonar úr Bernskubók. Loks lesa Björg Árnadóttir, Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson úr minningabók sinni Af heilum hug.

Sem fyrr eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis – sælgæti fyrir munn og eyru eins og hver getur torgað og fyrstu hundrað gestirnir fá frían drykk.

INNskráning

Nýskráning