Félagarnir Einar Már Guðmundsson og Bjartmar Guðlaugsson slá saman og troða upp á laugardaginn á Sjávarbarnum við Grandagarð. Þar flytja þeir sögur, ljóð og söngva af sinni valinkunnu snilld. Einar Már gaf á dögunum út bókina Bankastræti núll en Bjartmar hefur verið iðinn við kolann á tónlistarsviðinu að undanförnu og sent frá sér hvern smellinn á fætur öðrum.
Dagskráin hefst kl. 14, laugardaginn 9. júlí, verið velkomin!