Einar og Bjartmar

Engisprettufaraldur á menningarnótt

Skáldin og fjöllistamennirnir Einar Már Guðmundsson og Bjartmar Guðlaugsson leiða saman hesta sína á Sjávarbarnum við Grandagarð 9 á menningarnótt laugardaginn 20. ágúst kl. 17. Þar ætla þeir að lesa upp úr nýjum bókum sínum, segja saltar sögur, flytja ljóð og taka lagið ásamt tríóinu Blágresi.

Einar Már mun lesa upp úr bók sinni, Bankastræti núll, þar sem hann veltir vöngum yfir sambandi þjóðlífs og menningar á Íslandi eftir hrunið.

Bjartmar opnaði nýlega myndlistarsýningu á Sjávarbarnum. Af því tilefni var gefin út bók, Háseta vantar á bát, með myndverkum Bjartmars, ljóðum söngtextum og prósum.

Blágresi hefur starfað í tvö ár og spilar frumsamda þjóðlagatónlist og kántrí við texta Einars Más af væntanlegri plötu sinni.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

INNskráning

Nýskráning