Þórunn og Gréta

Endurprentanir sem beðið hefur verið eftir

Loksins, loksins! Tvær af vinsælustu bókum síðasta árs, Prjónabiblían og Stúlka með maga, hafa nú verið endurprentaðar og koma út í dag!

Prjónabiblían, eftir Grétu Sörensen, flaug úr hillunum fyrir jól og hefur verið uppseld síðan um það leyti. Bókin er kjörin fyrir allt áhugafólk um prjónaskap – bæði byrjendur og lengra komna – og er, eins og nafnið gefur til kynna, undirstöðurit um þessa sívinsælu handavinnu. Prjónabiblían var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2013 en í umsögn dómnefndar segir: „Prjónabiblían er mikið verk og vandað. Hana prýðir fjöldi ljósmynda og teikninga sem í sameiningu auka hagnýtingu hennar. Teikningarnar eru fínlegar blýantsteikningar sem ekki útskýra eingöngu á nákvæman hátt tæknileg atriði heldur eiga einnig vel við viðfangsefnið. Ljósmyndir eru skýrar og gefa tilfinningu fyrir áferð og útliti prjónsins.“

Á Facebook-síðu Forlagsins má taka þátt í Prjónabiblíuleik þar sem þrír heppnir fá eintak.

Stúlka með maga er nýjasta verk Þórunnar Erlu- og Valdimarsdóttur og er nú komin í kilju! Bókinni var gífurlega vel tekið þegar hún kom út fyrir jólin en hún hefur sömuleiðis verið uppseld í þó nokkurn tíma. Á dögunum hlaut hún Fjöruverðlaunin en í umsögn dómnefndar sagði m.a.: „[Þórunn] skrifar í orðastað móður sinnar, sem sér lengra en nef hennar nær, bæði fram í tímann og aftur í aldir. Rödd sögukonunnar er sterk og frumleg, eins og sagan sjálf, hæðin þegar það á við, en líka elsku- og huggunarrík. Það er mikill stráksskapur í textanum og stíllinn er fagur og töfrum slunginn.“

Við gleðjumst innilega yfir því að geta nú boðið lesendum upp á þessar frábæru bækur á ný.

INNskráning

Nýskráning