Emil í Kattholti

Emil snýr aftur!

Sögurnar um Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren hafa notið fádæma vinsælda hjá kynslóðum barna (og fullorðinna) um áratugaskeið. Nú er bókin Ja, þessi Emil loksins fáanleg aftur í bókaverslunum. Hún kom fyrst út árið 1992, í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur.  Bókin er í stóru broti og ríkulega myndskreytt.

Í bókinni er sagt frá nokkrum af prakkarastrikum Emils, eins og þegar hann hífði Ídu systur sína upp í fánastöng og deginum þegar hann eignaðist hestinn Lúkas og reið á honum inn í afmæli bæjarstjórans í Vimmabæ. Þá hlógu allir nema bæjarstjórinn …

INNskráning

Nýskráning