Eldgos í Háskólanum


Af hverju gjósa fjöll er ítarleg fræðslubók fyrir alla fjölskylduna gefin út í samstarfi við Vísindavefinn. Í dag opnaði sýning á myndunum úr bókinni í Háskólanum, nánar til tekið á Tröð, ganginum á milli Gimlis og Háskólatorgs. Þar streyma nemendur og kennarar um gangana allan liðlangan daginn en það er sjálfsagt að hvetja aðra til að líta á sýninguna, skoða um leið þessar nýju háskólabyggingar og fá sér svo kaffi og köku í Hámu.

Myndhöfundur er Þórarinn Már Baldursson sem þekktur er fyrir myndir sínar í bækurnar um Maxímús Músíkús. Allflestar myndirnar úr bókinni eru til sýnis, bæði þær sem Þórarinn málaði eftir nákvæmum vísindalegum fyrirmyndum og þær sem hafa húmorinn að leiðarljósi.

INNskráning

Nýskráning