Eldar kvikna

Eldar kvikna

Önnur bókin í þríleik Suzanne Collins um Hungurleikana, Eldar kvikna, kemur út í vikunni hjá Forlaginu. Bókin kemur samstundis út innbundin og í kiljubroti.

Í Eldar kvikna er haldið áfram að fylgjast með Katniss, Peeta og Gale og lífi þeirra í Panem þar sem uppreisnarólgur eru byrjaðar að vakna.

Hungurleikarnir hafa átt miklum vinsældum að fagna á Íslandi hjá fólki á öllum aldri. Innbundna útgáfan er uppseld og kiljan hefur verið prentuð tvisvar sinnum. Einnig eru Hungurleikarnir í rafbók mest selda rafbók Forlagsins.

Þriðja og síðasta bókin í þríleiknum, Hermiskaði, kemur út hjá Forlaginu í haust.

Smelltu hér til að nálgast fyrsta kaflann í Eldar kvikna!

INNskráning

Nýskráning