Sjöundi himinn

Eldar brenna

Út er komin ný spennusaga eftir krimmakeisarann James Patterson. Bókin Sjöundi himinn tilheyrir seríunni um Kvennamorðklúbbinn en þær bækur skrifar hann í félagi við Maxine Paetro.

Brennuvargur kveikir í húsum auðmanna í San Francisco og brennir þá inni. Lögreglukonan Lindsay Boxer og félagi hennar, Rich Conklin, leita hans en rannsaka um leið hvarf einkasonar ríkisstjórans. Vísbending leiðir til handtöku og játningar og málið kemur inn á borð saksóknarans Yuki Castellano, vinkonu Lindsay og félaga í Kvennamorðklúbbnum – en réttarhöldin taka óvænta stefnu. Á meðan brenna eldar í auðmannahverfunum og færast sífellt nær …

Lestu kaflabrot úr bókinni hér!


INNskráning

Nýskráning