Önnur prentun uppsláttarritsins Handbók um íslensku er komin í hús. Nú ættu allir áhugamenn um íslenska tungu að geta nælt sér í eintak en fyrsta prentun bókarinnar rann út eins og heitar lummur. Bókin er kjörin fyrir alla þá sem hafa áhuga á ritstörfum og tilvalin í gjafapakkann.