Einvígið eftir Arnald Indriðason, sem í franskri þýðingu Erics Bourys heitir Le Duel, kom út í Frakklandi síðastliðinn fimmtudag og stökk beint í efsta sætið yfir mest seldu glæpasögurnar.
Bókin fékk frábæra dóma og naut mikilla vinsælda þegar hún kom út hér heima árið 2011 og hefur nú gert það gott erlendis enda vísar efni hennar beint í alþjóðlega sögu.
Við óskum Arnaldi innilega til hamingju með árangurinn á þessum skamma tíma og vonumst til þess að bókin sitji sem allra fastast!