Rithöfundurinn Hannah Kent verður gestur á baðstofukvöldi Forlagsins á Rosenberg í kvöld, mánudagskvöldið 15. september. Hannah er höfundur metsölubókarinnar Náðarstund (e. Burial Rites) sem er nýkomin út á íslensku í þýðingu Jóns St. Kristjánssonar. Hannah Kent var 17 ára skiptinemi í Skagafirði þegar hún heyrði söguna um Agnesi Magnúsdóttur, Natan Ketilsson og síðustu aftökuna á Íslandi. Í bók sinni dregur Hannah upp ótrúlega mynd af íslenskum veruleika, harðri lífsbaráttu, heitum tilfinningum og hörmulegum örlögum. Náðarstund er fyrsta skáldsaga hennar og hefur farið sannkallaða sigurför um heiminn og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal Áströlsku bókmenntaverðlaunin.
Komið og hittið þessa mögnuðu ungu konu sem breytt hefur sýn okkar á eitt alræmdasta sakamál Íslandssögunnar.
Dagskráin hefst kl. 20, fyrstu 50 gestirnir fá frían drykk og þeir fyrstu 10 fá eintak af bókinni.
„Ótrúleg bók sem ég sat límdur við. Ungur ástralskur höfundur dýfir sér í jökulkalt sagnadjúp okkar og kemur úr kafi með skáldsögusem er svo trúverðug að manni finnst hún helst vera samtímalýsing frá 1830. Vatnsdalurinn verður aldrei samur.“
Hallgrímur Helgason