Við vekjum athygli á því að heilsuráðgjafinn Lene Hansson er væntanleg aftur til Íslands núna í vikunni. Bók Lene, Léttara og betra líf, kom út í vor og fékk feiknafínar viðtökur. Lene er einn virtasti næringarráðgjafi Danmerkur og hefur gefið út tugi bóka þar í landi – ásamt því að starfa við dagskrárgerð af ýmsu tagi og reka sína eigin heilsumiðstöð. Lene heldur fyrirlestur í Baðhúsinu nk. þriðjudag, 20. september kl. 19.30, og verður síðan með einkaráðgjöf þar á miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Sjá nánar hér.
Lene fræðir okkur um sýru/basa-jafnvægi í matarræði sem hjálpar þér að koma jafnvægi á orku og þyngd og um rétta samsetningu fæðunnar sem hjálpar okkur að hreinsa líkamann af úrgangsefnum, bæta ónæmiskerfið og létta okkur lífið – til frambúðar.