Tilkynnt var í vikunni að rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson hlyti viðurkenningu úr minningasjóði danska rithöfundarins og róttæklingsins Carls Scharnbergs. Verðlaunin hlýtur Einar fyrir ritstörf sín og virka þátttöku í samfélagsumræðu. Í umsögn valnefndarinnar segir meðal annars. „Einar Már Guðmundsson er einstakur maður. Í Hvítu bókinni sameinar hann skarpa samfélagsgreiningu og ljóðræna yfirsýn á óvenjulegan hátt, og í yfirstandandi deilu Íslendinga um leiðir út úr kreppunni er hann ötull talsmaður þess að fjármálafurstar og pólitíska valda-og fjölmiðlaelítan beri ábyrgð en ekki íslenska þjóðin.“
Verðlaunin nema 10.000 dönskum krónum og verða þau veitt við hátíðlega athöfn þann 9. júní næstkomandi
Hvítbók Einars Más hefur þegar verið gefin út í Þýskalandi og Noregi auk Danmerkur og hlotið frábærar undirtekir.