Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson veitti heiðursverðlaunum sem kennd eru við Bjørnstjerne Bjørnson viðtöku á dögunum við hátíðlega athöfn í Noregi . Einar Már var heiðraður ásamt Slóvenanum Milan Richter fyrir framlag sitt til þjóðlífs og menningar og ekki síst skelegga framkomu sína á ritvellinum í kjölfar efnahagshrunsins hér heima. Í rökstuðningi akademíunnar kom meðal annars fram að Einar væri meðal fremstu rithöfunda Norðurlanda, alvarlegur og nútímalegur höfundur með skínandi góðan húmor.
Talsverð umfjöllun var um verðlaunin í norskum fjölmiðlum og ræddi Einar til að mynda við fréttastofuna NTB um þann litla hóp fjármálafimleikamanna sem skaðað hefur svo mjög fjölskyldur og launafólk á Íslandi og þau reikningsskil sem óhjákvæmilega eru framundan. Í viðtalinu kom einnig fram sú skoðun Einars að almenningur á Íslandi verði að sýna áhuga og gera skýrar kröfur ef þjóðin á einhvern tíma að komast úr þeim ófærum sem peningabarónarnir hafa leitt hana út í. Í dag hafi ríkisstjórnin vilja til þess en ekki nægilegt athafnarými til að koma skútunni aftur á réttan kjöl.