Blágresi, Bjartmar Guðlaugsson og Einar Már Guðmundsson rithöfundur halda tónleika fimmtudaginn 6. október á Café Rósenberg kl. 20:30
Fyrsta skífa Blágresis, Hvað ef himininn brotnar… er væntanleg í byrjun nóvember. Hún inniheldur frumsamin lög í melodískum þjóðlaga og kántrí stíl en Einar Már deilir bæði áður útgefnum ljóðum og semur nýja texta fyrir sveitina.
Tríóið skipa þau Tinna Marína, Daníel Auðunsson og Leifur Björnsson.
Einar Már Guðmundsson gaf út bók á árinu, Bankastræti núll, með undirtiltlinum sögur úr veruleikanum. Þar tekur hann upp þráðinn frá Hvítu bókinni og veltir vöngum yfir sambandi þjóðlífs og menningar á Íslandi eftir hrunið.
Bjartmar lýkur svo kvöldinu með flutningi á sínum helstu perlum, en þess má geta að hann gaf einnig út bók, Háseta vantar á bát, með myndverkum, ljóðum, söngtextum og prósum.
Miðaverð 1.000 Kr.