Einar Már hlýtur Bjørnsonverðlaunin

Tilkynnt var nú í vikunni að rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson hljóti norsku Bjørnsonverðlaunin þetta árið. Verðlaun þessi eru mikil viðurkenning, þau eru kennt við rithöfundinn Bjørnstjerne Bjørnson sem var og er eitt af höfuðskáldum frænda vorra í Noregi. Verðlaunin hlýtur Einar Már ekki síst fyrir sína nýjustu bók, Hvítu bókina, sem sameinar á eftirminnilegan hátt stílsnilld rithöfundarins og skarpa samfélagsgreiningu. Verðlaunaféð jafngildir um tveimur milljónum króna og verður afhent 30. ágúst nk. í tengslum við námskeið um fjármálakreppuna þar sem kastljósinu verður m.a. beint að Íslandi.

INNskráning

Nýskráning