Gleði, gleði! Í dag koma út á ný tvær bækur um einn helsta góðvin þjóðarinnar Einar Áskel! Þetta eru bækurnar Góða nótt, Einar Áskell og Engan asa, Einar Áskell.
Fyrstu bækurnar um þennan geðþekka dreng samdi Gunilla Bergström fyrir um 40 árum síðan en Einar Áskell hefur verið til á íslensku frá og með útgáfu fyrstu bókarinnar, Góða nótt, árið 1980 – en þessi fyrsta bók er sömuleiðis sú allra vinsælasta meðal Íslendinga.
Nú eru þessar sígildu bækur komnar út á ný í sama gamla, góða, fallega brotinu og eiga jafnvel við í dag og þegar þær voru fyrst kynntar fyrir Íslendingum.
Til hamingju með daginn, Einar Áskell!
Hér má finna stórskemmtilegt viðtal við Sigrúnu Árnadóttur sem hefur annast þýðingar bókanna um Einar Áskel allt frá upphafi.