Stefán Máni

„Ein besta íslenska glæpasaga þessa árs“

Dómur um Húsið eftir Stefán Mána birtist í Fréttablaðinu síðustu helgi. Friðrika lýsir þar ánægju sinni með „einn magnaðasta lögreglumann í íslenskum krimmaheimi.“ Hörður Grímsson er svo sannarlega magnaður; tröllvaxinn, með rautt sítt hár, skyggn, alkahólisti, durgur … og Friðrika sem og aðrir heillast að þessum breyska manni.

Friðrika er ekki bara ánægð með söguhetjuna, hún er ánægð með bókina í heild: „Bygging sögunnar er geysivel unnin og allir þræðir faglega fléttaðir saman … hin ánægjulegasta lesning bæði sem glæpasaga og sálfræðitryllir og vekur lesandann til meiri umhugsunar um eðli og aðstæður glæpamanna en ég minnist að hafa upplifað við lestur íslenksrar glæpasögu fyrr.“

Sem sagt, bók full af karlmennsku, dulrænum öflum og taugatitringi. Fínasta þrenna.

INNskráning

Nýskráning