Ein áhugaverðasta skáldsaga síðasta árs

Björn Þór Vilhjálmsson bókarýnir skrifar athyglisverða umfjöllun um skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl, Gæsku, í nýjasta hefti TMM.  Björn segir að þar slái höfundur nýjan og ferskan tón í uppgjörsbókmenntaflórunni og lesendur eygi þar útlínur þess uppgjörs sem skáldskapurinn er fær um að veita í stríðinu við samtímann. Hér er brot úr dómi Björns:

„Tekið er á atburðum nýliðinna ára á Íslandi, hruninu mikla, aðdraganda og eftirköstum, og þannig staðsetur bókin sig í flokki sem nú þegar er mögulegt að kalla sérstaka undirgrein íslenskra samtímabókmennta … En Gæska hefur sérstöðu. Í stað hefðbundinna sögupersóna og aristótelísks söguaga er hér sjónarspil hins flaumósa ímyndunarafls, eins og það birtist í meðförum afar spræks söguhöfundar sem ryðst hér að miðju frásagnarinnar og gengur þar í fóstbræðralag við félagslega vitund sem heldur á lofti öflugri gagnrýni á Ísland samtímans. Útkoman er ein áhugaverðasta skáldsaga síðasta árs, verk sem slær nýjan og ferskan tón í uppgjörsbókmenntaflórunni, með þeim tilþrifum sem þarf til að verkið sligist ekki undan þunga hins aðkallandi sögulega veruleika sem liggur til grundvallar; með þessari skáldsögu eygjum við útlínur þess uppgjörs sem skáldskapurinn er fær um að veita í stríðinu við samtímann.”

INNskráning

Nýskráning