Vera Knútsdóttir fjallar í löngu og ítarlegu máli um skáldsögu Kristínar Eiríksdóttur, Hvítfeld – fjölskyldusaga, á vef Borgarbókasafnins og segir hana þaulhugsaða og metnaðarfulla skáldsögu sem nýti sér meðvitað eiginleika skáldsöguformsins og leiki sér jafnvel að þeim. „Hér er um að ræða nokkurs konar afhjúpunarform,” segir Vera, „lesandi fær sögu, sem við nánari skoðun er ef til vill dálítið yfirborðskennd, en hann fattar það ekki fyrr en söguhöfundurinn gerir honum grein fyrir blekkingunni … sagan fer fram og aftur í tíma og rúmi og við komum stundum aftur að sama augnablikinu en frá mismunandi sjónarhornum – sem undirstrikar margröddun sögunnar og ólíka afstöðu persónanna. Þá gefur blekkingaleikurinn söguhöfundinum ákveðið tækifæri til að leika sér með ýmis atriði sem hún þarf svo ekki að afgreiða til enda öðruvísi en að segja að sé uppspuni. En rétt eins og ein persóna sögunnar bendir á hafa lygar líka merkingu: „Laufey segir að lygar séu ekki merkingalausar frekar en skáldskapur eða draumar. Í rauninni séu þær búnar til úr sama efni.“ (257)
Í lok greinar sinnar segir Vera: „Þó að mér hafi fundist oft erfitt að lesa Hvítfeld og beinlínis farið í fýlu eftir lestur sumra kafla, er hún dæmi um sögu sem situr í lesandanum löngu eftir að lestrinum er lokið, jafnvel saga sem lesandinn þarf að fá að ræða um við aðra, melta og meta í nokkra daga eða vikur. Hvítfeld er því hiklaust ein af forvitnilegri skáldsögum sem komu út á síðasta ári. Þá er vert að taka það fram að hún er afar vel skrifuð og stíluð; textinn er áreynslulaus og lesturinn liðast mjúklega áfram – þó að efni sögunnar valdi því að lesandann reki á stundum hressilega í rogastans.“