Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason fjallaði um bókina Alheiminn í Kilju-þætti sínum í gær og kvaðst þar vera heillaður af ritinu. Viðmælandi hans í ættinum var Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og einn ötulasti talsmaður stjörnufræðanna hérlendis. Sævar Helgi benti á að í bókinni væri fjallað um ýmsa hluti sem ekki hefði verið skrifað um á íslensku áður og gat þess einnig að segja mætti að nú væri gullöld stjarnvísindanna runnin upp – þekking okkar á stjörnunum færi sífellt vaxandi með tilkomu nýrrar tækni og auknum rannsóknum. Við hvetjum alla til þess að kíkja í þessa frábæru bók, horfa til himins og heillast með.