Nýlega var opnuð í anddyri Amtsbókasafnsins á Akureyri sýning um ævi og ritverk fransk-úkraínsku skáldkonunnar Irène Némirovsky, höfundar Franskrar svítu. Ber sýningin yfirskriftina ‘Ég skrifa á brennheitu hrauni …’
Irène Némirovsky fæddist í Kiev í Úkraínu árið 1903. Hún flúði ásamt fjölskyldu sinni frá Rússlandi í byltingunni, bjó um skeið í Finnlandi og flutti síðan til Frakklands. Átján ára birti Némirovsky fyrstu sögurnar sínar en hún sló í gegn árið 1929 með sögunni David Golder sem var kvikmynduð ári síðar. Irène hélt ótrauð áfram og sendi frá sér skáldsögur og smásögur á næstu árum. Hún var handtekin árið 1942 og send í útrýmingarbúðir nasista í Auschwitz þar sem hún lést. Dóttir Irène varðveitti óútgefið handrit móður sinnar í áratugi uns það var loks gefið út árið 2004 undir heitinu Frönsk svíta. Sagan hefur verið gefin út í fjörutíu löndum og hvarvetna notið gríðarlegra vinsælda.
Sýningin, sem er á vegum Alliance française og er liður í hátíðarhöldum vegna aldarafmælis félagsins, stendur til 10. nóvember, aðgangur er ókeypis og allt áhugafólk um bókmenntir og sögu velkomið. Nánar á vef Amtsbókasafnsins.