Það ætti engum að leiðast í sumarfríinu. Þökk sé þremur splunkunýjum bókum sem leyfa sköpunargáfunni og heilandi kröftum að njóta sín.
Þeir sem vilja grípa í prjónana ættu að næla sér í eintak af Sokkaprjón, bók með 52 sérlega smekklegum sokkauppskriftum.
Þeir sem kjósa að dúlla sér í eldhúsinu ættu að kíkja á bókina Bollakökur Rikku sem er ekki einungis uppskriftabók heldur einnig stútfull af hugmyndum og skemmtilegu kökuföndri.
Þeir sem vilja njóta útiverunnar í sumarfríinu ættu að grípa Íslenskar lækningajurtir með í sumarbústaðinn, göngutúrinn eða ferðalagið. Í bókinni er fjallað um lækningamátt íslenskra jurta og hvernig er best að finna þessar jurtir. Allir ættu að geta búið til smyrsli og bakstra með hjálp þessarar bókar.
Hreinsum hugann í sumarfríinu – ræktum áhugamálin og dúllum okkur!